ókei, smá tékk.. hver sá sem les þessa færslu verður að
kommenta, þó ekki sé nema bara nafnið. ég er samt ekki að fara að
skrifa neitt voða spes sko, bara smá svona updeit á júní
mánuði.
vinnan er voða fín, er að vinna hjá Arctic Rafting/Arctic
Adventures fyrir þá sem ekki vita. er að fara í snorkling á morgun
t.d. =) fór á rafting námskeið um daginn og þegar ég fæ loksins
tíma til að fara í æfingasiglingar þá verð ég orðin fullgildur
rafting guide. ég er bara alltaf vinnandi eða að stússast í
brúðkaupsundirbúningi svo ég kemst aldrei í æfingasiglingar. og
nei, ég er ekki að fara að gifta mig. bara að undirbúa brúðkaup.
hjá maríu... og palla víst líka.
er búin að vera á fullu undanfarið að skipuleggja gæsapartýið
hennar maríu, það var mega vesen, gæsuninni var frestað um viku og
svo hætti hellingur við að koma.. en þetta gekk allt í gegn á
endanum og ég get loksins talað við maríu án þess að þurfa að fela
eitthvað fyrir henni (fáránlegt hvað henni fannst sniðugt að hitta
mig oft dagana fyrir gæsun þegar allar stelpurnar voru alltaf að
hringja í mig á meðan og ég gat aldrei talað af viti við neinn í
símann - "já hæ, ÉG ER MEÐ MARÍU, hvað segirðu gott?..." - já,
maría, þetta var bara, uuuh, mamma..).
en já, það var gæsun um síðustu helgi, voða gaman. fórum í
adrenalíngarðinn og í súludanstíma (ég er búin að öðlast nýja
virðingu fyrir þeim sem eru góðar/góðir í súludansi - þetta er
sjúklega erfitt - og mikil list!). svo fórum við með maríu í
vinnuna í fínu fötunum sínum (skærbleiku outfitti og ógeðslegu
nærfatasetti yfir) og sendum hana svo í nudd á nordica. eftir nudd
klæddist hún vibbalegum sundbol, sem að undirrituð á sjálf, og við
héldum í nauthólsvík í sólbað. svo var farið til mín í sterka
mojito drykkju og svo á tapas barinn í græsilegar krásir. eftir það
var þetta komið í eitthvað rugl á ýmsum skemmtistöðum - en maría
entist mun lengur en palli sem var steggjaður sama dag!
helgina þar á undan var svo náttlega 17. júní - einn sá besti
þjóðhátíðardagur sem ég man eftir! það var ógeeeeðslega gaman! gott
djamm með báðum systkinum mínum daginn áður, fór án efa réttum
megin fram úr rúminu um morguninn og svo í ofsa góðan 17. júní
brunch. hitti svo bara flestar mínar góðu vinkonur í blíðviðri og
vann karmellupoka í hallargarðinum. svo unnum við náttúrulega
handboltaleikinn um kvöldið og tónleikarnir niðrí bæ voru geggjaðir
- þá sérstaklega páll óskar, oh hvað það er gaman að dansa við
tónlistina hans. einu svörtu punktarnir á deginum voru þeir að
kvöldmaturinn var ekkert voða góður og svo missti ég gasblöðruna
mína - áður en ég gat gleypt nokkuð gas!
svo var tinna systir og michel unnusti í heimsókn á landinu í
viku, það var ofsa gaman að hitta þau. æði að djamma bæði með
systur minni og bróður - fyrsta skipti sem það gerist!
hmm.. hvað fleira. já, fór á Air. það var gaman. það er búið að
vera ofsa gott veður, það er líka gaman. mig langar til noregs í
viku snjóbrettaferð að heilsa upp á vini í leiðinni en hef ekki
efni á því, það er ekki gaman. ég ætla til eyja á þjóðhátíð - það
er mega gaman, hver kemur með? valur er að koma til íslands í næstu
viku, það er gaman. hmm.. ég er viss um að það sé eitthvað fleira
gaman. já, er að fara á dúndurfréttir og sinfóníuhljómsveitina að
spila the wall á fös og í afmælispartý á lau. og keypti mér kjól
til að vera í í brúðkaupinu í dag. og annan kjól bara því hann var
svo flottur - hann er samt hvítur svo ég má ekki vera í honum í
brúðkaupinu (asnaleg regla!) .. er ekki e-r að fara að útskrifast
eða halda upp á stórafmæli eða eitthvað slíkt svo ég megi koma í
nýja, fína, hvíta kjólnum mínum?
allavega... lífið er skemmtilegt. ég ætla að fara að lesa
restina af æðislegu bókinni sem æðislega systir mín gaf mér í
síðustu viku. og hlakka til ískalds snorkels á morgun (er ekki til
eitthvað íslenskt orð yfir snorkel?)